Mannlegi þátturinn

Tannvernd og munnheilsa, samverustundir með gamlar sorgir og meðvirkni og barnauppeldi

Tannverndarvikan 2026 er einmitt þessa vikuna, Góð munnheilsa alla ævi er yfirskrift vikunnar í ár. Þó munnheilsa auðvitað mikilvæg á öllum stigum lífsins þá er í ár lögð sérstök áhersla á börn og ungmenni og áhrif nikótíns og koffíns á tennur og munnheilsu. Íris Þórsdóttir, tannlæknir í Vestmannaeyjum og nefndarmaður í Fræðslunefnd Tannlæknafélags Íslands kom í þáttinn í dag og sagði betur frá þessu og talaði einnig um munnþurrk hjá eldra fólki, sem getur komið til af margvíslegum orsökum en getur ýtt undir tannskemmdir.

Gleym mér ei styrktarfélag var stofnað árið 2013 af þremur konum, Önnu Lísu Björnsdóttur, Þórunni Pálsdóttur og Hrafnhildi Hafsteinsdóttur, en sameiginleg reynsla þeirra af missi á meðgöngu færði þær saman með það markmiði styðja betur við foreldra sem missa barn á meðgöngu, í fæðingu og fljótlega eftir hana. Félagið hefur stækkað á þessum árum sem eru liðin síðan en tilgangurinn er enn sami. Sigrún Kristínar Valsdóttir kom til okkar í dag og sagði okkur betur frá félaginu, áherslu á gamlar sorgir í samverustundum sem félagið hefur staðið fyrir, hópastarfið og fleira.

Svo voru það Mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í dag talaði Valdimar um meðvirkni og barnauppeldi. Þar var af nógu taka.

Tónlist í þættinum í dag:

Lover Girl / Laufey (Laufey og Spencer Stewart)

Eitt af blómunum / Benni Hemm Hemm og Páll Óskar (Benedikt Hermann Hermannsson og Páll Óskar Hjálmtýsson)

Cairo vibe / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson)

Stúlkan / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Andrea Gylfadóttir)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

19. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,