Mannlegi þátturinn

Inflúensa, prótein og veðurspjall

Við tölum um flensuna í þætti dagsins. Umsjónarmönnum Mannlega þáttarins hafa borist fregnir af fólki sem hefur veikst nokkuð kröftuglega af inflúensu í þessum mánuði, sem okkur þykir full snemmt, október er rétt verða hálfnaður. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir ætlar spjalla við okkur um inflúensu, hvernig hún hegðar sér - er hún óvenju snemma á ferðinni? Og viðbrögðin - eru bólusetningar t.d. hafnar?

Prótein virðist vera heilsuorð haustsins og aukin prótein-inntaka er eitthvað sem víða er mælt með. En í frumskógi upplýsinga er oft erfitt finna rétt svör og þá leitar maður til fagfólksins. Þórhallur Ingi Halldórsson er prófessor við matvæla og næringarfræðideild, við spyrjum hann út í neyslu próteina og hvort hættulegt borða of mikið af því.

Í veðurspjallinu með Einari Sveinbjörnssyni tölum við meðal annars um kakó en kakóræktun er viðkvæm fyrir veðurfarssveiflum og breytingum. 60-70% af öllu kakói kemur frá tveimur ríkjum í Afríku og ef veður svíkur þar er umtalsverð hætta á heimsmarkaðsverð á kakói margfaldist. Við ræðum líka um sumarveðráttuna á Íslandi og fleira.

Umsjón: Guðmundur Pálsson og Guðrún Gunnarsdóttir

Tónlist í þætti dagsins:

Haraldur Reynisson - Hámenningin.

Fjallabræður og Lay Low - Hvíl í ró.

Hjálmar og Prins Póló - Grillið inn.

Frumflutt

14. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,