Mannlegi þátturinn

Gott aðgengi í ferðaþjónustu, Kvennaárið 2025 og efnaskipti á Heilsuvaktinni

Mikill fjöldi, hvaðanæva úr heiminum, hefur áhuga á því ferðast, hefur bæði tíma og fjármuni til gera það en heldur sig samt heima vegna þess aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða er víða ábótavant. Samkvæmt íslenskum lögum og reglugerðum á gæta þess sérstaklega aðgangur fólks með fötlun manngerðu umhverfi til jafns við aðra. Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar, Landssambands Hreyfihamlaðra, kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir stöðuna í aðgengismálum í ferðaþjónustu.

Það eru liðin 50 ár frá því konur hér á landi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið. Þrátt fyrir þrotlausa baráttu í hálfa öld búa konur enn við misrétti og ofbeldi. Metþátttaka var í Kvennaverkfallinu árið 2023 og valdefling, baráttugleði, og skýrt ákall um breytingar einkenndu þessa miklu samstöðu rétt eins og árið 1975. Næsta fimmtudag fer fram fyrsti viðburður kvennaársins í Iðnó og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá.

Heilbrigð efnaskipti í líkamanum stuðla ekki eingöngu góðri líkamlegri heilsu heldur hefur hún einnig veruleg áhrif á andlega heilsu. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst viðvarandi efnaskiptavilla í líkamanum, sem á sér stað þegar viðkomandi neytir of mikils sykraðs og gjörunnins mataræðis til langs tíma, getur haft áhrif á myndun hvers kyns geðsjúkdóma, viðhaldið þeim og hreinlega komið í veg fyrir fólk nái bata. Guðmundur Freyr Jóhannsson, lyf- og bráðalæknir, hélt erindi um andlega heilsu og efnaskipti á nýafstöðnum Læknadögum í Hörpunni hefur undanfarin ár reynt vekja athygli almennings á skaðlegum áhrifum gjörunnins og sykraðs mataræðis og rætt um lausnir fyrir fólk til leiðrétta efnaskiptin. Hann vill beina athygli okkar áhrifum viðvarandi efnaskiptavillu á geðsjúkdóma. Helga Arnardóttir ræddi við Guðmund Frey á Heilsuvaktinni í dag.

Tónlist í þættinum:

Síðan eru liðin mörg ár / Brimkló (Brimkló, Chip Taylor, texti Þorsteinn Eggertsson)

Með þér / Ragnheiður Gröndal (Bubbi Morthens)

Engin önnur en ég er / Ellen Kristjánsdóttir (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

28. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,