• 00:06:52Monika Hjálmtýsd. - staðan á fasteignamarkaðinum
  • 00:36:33Steinunn Knúts Önnudóttir - Leiðin

Mannlegi þátturinn

Staðan á fasteignamarkaðinum og performatífar pílagrímsgöngur

Fasteignamarkaðurinn er gjarnan í fréttum af ýmsum ástæðum. Fasteignaverðið og þróun þess, framboð á íbúðum,leiguíbúðum og síðast nýtt fasteignamat. Við ákváðum því skoða aðeins hver er staðan á fasteignamarkaðinum í dag. Monika Hjálmtýsdóttir formaður Félags fasteignasala kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir sviðið og skoða stöðuna og hvert fasteignamarkaðurinn er stefna.

Við fjöllum gjarnan um útivist og göngur, gönguleiðir og svo framvegis. Í dag forvitnuðums viðt aðeins um göngu og útivist sem eru öðruvísi, eða hvað? Hún kallast Leiðin og er vissulega ganga, en líka sviðslistaverk, þar sem þáttakendum, eða kannski frekar gestum, er boðið í performatífa pílagrímsgöngur á nokkrum stöðum á landinu, þar sem markmiðið er rannsaka ferðalagið sem form. Steinunn Knúts Önnudóttir sviðslistakona kom í þáttinn í dag, en hún stendur þessum göngum, og við fengum hana til útskýra betur fyrir okkur þessar göngur.

Tónlist í þættinum í dag:

Veldu stjörnu / Ellen Kristjáns og John Grant (Ellen Kristjáns, texti Bragi Valdimar Skúlason)

Draumur / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir, texti Steinn Steinarr)

Töfrabörn / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

19. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,