Mannlegi þátturinn

Hækkun fasteignamats, Menningargarðurinn og vinningshafi Verðlaunasjóðs lækna

Fasteignamat hækkar enn og samkvæmt nýju mati fyrir árið 2026 hefur það hækkað um 9,2% á milli ára. Þetta getur auðvitað haft áhrif á fasteignagjöld en þarf ekkert endilega

gera það. Tryggvi Már Ingvarsson framkvæmdastjóri Fasteigna hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun ræddi þetta og fór einnig yfir hvernig staðið var

matinu og hvað hafði raunverulega áhrif á hækkun þess.

Á mánudaginn snýr Menningargarðurinn aftur í Húsdýragarðinum, en þetta er annað sinn sem hann verður haldinn þar sem fjölbreytileika samfélagsins er fagnað með kynningu á menningu ólíkra þjóða, matreiðslu, handverksmiðju, dans, söng og sýningum. Þessi viðburður er haldinn á vegum menningarsendiherranna sem hittast í Suðurmiðstöð

Reykjavíkurborgar einu sinni í mánuði. Sóley Thuy Doung, Lina Haidar Hatem og Jóhannes Guðlaugsson verkefnistjóri lýðheilsu og forvarna í Suðurmiðstöð komu í þáttinn og sögðu frá deginum.

Við kynntumst svo nýjasta verðlaunahafa Verðlaunasjóðs í læknisfræði og skyldum greinum, Martin Inga Sigurðssyni, prófessor í svæfingum og gjörgæslulækningum og yfirlæknir við svæfinga-og gjörgæsludeild Landspítalans. Verðlaunin nema sjö milljónum króna en um er ræða ein stærstu verðlaun sem veitt eru íslenskum vísindamönnum. Martin hlýtur verðlaunin fyrir rannsóknarferil sinn, meðal annars við meta einstaklingsbundna áhættu við svæfingar til koma í veg fyrir alvarlegar aukaverkanir. Martin sagði frá sínum störfum og með honum kom Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands sem sagði frá verðlaunasjóðnum og hver rökstuðningurinn var við valið í ár.

Tónlist í þættinum í dag:

Lapis Lazuli / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson)

Lóan er komin / Tendra (James A. Bland, texti Páll Ólafsson)

Stjörnur stara / Rebekka Blöndal (Ásgeir Jón Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal)

Brúnaljósin brúnu / Páll Óskar Hjálmtýsson (Jenni Jóns)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

Frumflutt

4. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,