Víðsjá

Hildur Hákonar og birkitré, vesturfarar við Winnipegvatn og Jónsmessunæturdraumur/rýni

Hildur Sigurbergsdóttir hefur rannsakað sögulegar heimildir um samskipti Íslendinga sem fluttu til Nýja-Íslands fyrir aldamótin 1900 við frumbyggja sem þar bjuggu fyrir. Hildur er meðal fyrirlesara á málþingi um vesturfara sem haldið verður í Eddu á morgun, í tilefni af því 150 ár eru liðin frá stofnun Nýja-Íslands í Kanada og kemur í hljóðstofu. Hildur Hákonardóttir er ein af okkar fremstu myndlistarkonum og á einnig baki ritferil þar sem náttúran kemur mikið við sögu. Um helgina gefur hún út bók sem hún kallar Ef ég væri birkitré, þar sem hún vefur saman persónulegum hugleiðingum við sögulegar og hagnýtar upplýsingar um birkið, tré sem hefur mótað landið og menningu okkar frá landnámi. Katla Ársælsdóttir fór á frumsýningu í Tjarnarbíói um síðustu helgi, á Jónsmessunæturdraumi Shakespeare í leikstjórn Maríu Ellingsen og Magnúsar Thorlacius og rýnir í verkið í þætti dagsins.

Frumflutt

2. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,