Víðsjá

Svipmynd af Hennar rödd

Hennar rödd eru félagasamtök stofnuð af þeim Chanel Björk Sturludóttir og Elínborgu Kolbeinsdóttur með það markmiði vekja athygli á stöðu kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi. Innblástur verkefnisins kom frá Letetia B. Jonsson, móður Chanel, en hún er af jamaískum og breskum uppruna og bjó hér á landi fyrir um það bil 10 árum síðan og tók virkan þátt í samfélagi kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og vildi miðla sögum þeirra. Samtökin Hennar rödd hafa frá árinu 2018 staðið fyrir pallborðsumræðum og ráðstefnum þar sem mál erlendra kvenna á íslandi eru í brennidepli en í ár, í samstarfi við Elinóru Guðmundsdóttur hjá bókaútgafunni Vía, gefa þær út veglega bók þar sem raktar eru sögur rúmlega þrjátíu kvenna af erlendum uppruna sem búa hér á landi.

Í þættinum segja þær Elínborg og Elinóra frá bókinni; Hennar rödd: sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. En þar á eftir rekja tvær konur sem koma fyrir í verkinu sínar sögur, þær Marvi og Jóhanna.

Frumflutt

5. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,