Víðsjá

Jónsmessa og bændur

Í dag er Jónsmessa og er Víðsjá tileinkuð henni og sömuleiðis bændum. Lengi vel var útvarpað sérstökum Jónsmessuþætti bænda enda var ákveðið á Búnaðarþingi árið 1959 Jónsmessa yrði gerð hátíðardegi bænda. Siðurinn var lagður af rúmum tveimur áratugum síðar en í safni RÚV eru fjölmargir Jónsmessuþættir bænda frá 7. og 8. áratug síðustu aldar. gefnu tilefni fögnum við Jónsmessunni með bændum fortíðar og nútíðar. Heyrum brot úr viðtölum eldri þátta, heyrum í ungum bónda á Reyðarfirði og rifjum upp dulrænar hefðir Jónsmessunætur með þjóðháttafræðingum.

Frumflutt

24. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,