Víðsjá

Tolli Morthens, Gallerí Port og hugvekja Freyju Þórsdóttur

„Í mínu innra landslagi var tilfinningin svoldið eins og landslagið sem ég er mála, svona slepptu, treystu og leyfðu þér bráðna, leyfðu þér vera eins og vorið á Hrafntinnuskeri,“ segir Tolli Morthens um yfirstandandi málverkasýningu í gallerí Þulu, sem hann kallar Fingraför árstíða. Verkin vann hann eftir göngu Fjallabaki með góðum hópi fólks úr jaðarsettri stöðu, en Tolli segist hafa óbilandi trúa á hjálpræðinu sem felst í ástríðufullu sambandi við Móður Jörð. Meira af því í Víðsjá dagsins.

Við lítum einnig inn í Gallerí Port sem fagnar 10 ára afmæli í vikunni og heldur upp á það með nýjum verkum og tilkynningu um breytta tíma í Porti. Og einnig heyrum við hugvekju frá Freyju Þórsdóttur um hugarró og dómhörku.

Birt

24. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,