Víðsjá

Ný íslensk ópera í Berlín, Adrianne Lenker og Stefán sigrar atvinnulífið

Í gærkvöldi var íslensk ópera frumflutt í Berlín. Óperan ber heitið Cave, og kemur úr smiðju tónskáldsins Hauks Þórs Harðarsonar, sem var einn þriggja vinningshafa í keppni sem ber yfirskriftina Neue Szenen, og er ætlað vekja athygli á nýjum og áhugaverðum röddum í heimi klassískrar tónlistar og óperu. Við sláum á þráðinn hjá Hauki Þór í upphafi þáttar.

Kalta Ársælsdóttir rýnir í einleikinn Stefán sigrar atvinnulífið, sem grínistinn og sviðshöfundurinn Stefán Ingvar Vigfússon sýnir í Sykursalnum og í síðari hluta þáttar setur Tómas Ævar upp greiningargleraugun í umfjöllun sinni um nýja tónleikaplötu bandarísku tónlistarkonunnar Adrianne Lenker Live at Revolution Hall sem kom út í síðustu viku.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Frumflutt

28. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,