Víðsjá

Myrkur og ævintýri, óperan Ragnarök og Ariel Sylvíu Plath/rýni

Bókmenntafræðingurinn Aðalheiður Guðmundsdóttir hefur rannsakað sérstaklega hlutverk vetrarins og myrkursins í íslenskum ævintýrum. Í grein í nýjasta tölublaði Ritsins setur hún ævintýrin í samhengi við líf og lífsskilyrði Íslendinga áður fyrr og skoðar myrkrið og birtingarmyndir þess, sem gegnir hennar sögn lykilhlutverki, ekki síst vegna þess myrkrið kallar á andstæðu sína, ljósið, eða vonina.

íslensk ópera verður frumflutt í Hörpu um næstu helgi, Ragnarök eftir Helga R. Ingvarsson. Uppfærslan er hluti af Óperudögum og er flutt í samstarfi við Kammeróperuna. Í verkinu kynnumst við ásunum og sjáum hvernig hroki þeirra, lygar og hégómi leiðir til dauða þeirra í loka bardaganum, Ragnarökum. Helgi lítur við í hljóðstofu í þætti dagsins

Gauti Kristmannsson verður líka með okkur og rýnir þessu sinni í þýðingu Móheiðar Geirlaugsdóttur á ljóðabókinni Ariel, eftir Sylvíu Plath.

Frumflutt

20. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,