Víðsjá

Ilan Volkov á Proms, orð Reham Khaled, Háttatal Guðmundar Steins og Lína langsokkur

Við heyrum í dag raddir úr ólíkum áttum, áttum sem oftar en ekki er stillt upp sem andstæðum, röddum sem þó kalla eftir því sama; friði. Við heyrum pistil frá barnaskólakennara á Gaza, hinni 28 ára gömlu Reham Khaled. Khaled er líka skáld og næmur penni og um miðbik þáttar heyrum við þýðingu Guðrúnar Hannesdóttur á ákalli Reham Khaled, Örvæntingarópið sem enginn heyrir. Við hringjum líka til Ísrael til ræða við Ilan Volkov, fyrrum aðalhljómsveitarstjóri SÍ, sem vakti mikla athygli síðasta fimmtudagskvöld, þegar hann hélt ræðu loknum Proms tónleikum í Royal Albert Hall og kallaði eftir aðgerðum alþjóðasamfélagsins til stöðva hörmungarnar á Gaza.

Guðmundur Steinn Gunnarsson sendi nýverið frá sér plötu með Ensamble Adapter sem gerir hrynjandi kvæða eða sérstakra braghátta rannsóknarefni sínu og nefnist hún Clavis Metrica eða Háttatal. Við ræðum við Guðmund Stein um háttatalið í þessum þætti sem er einmitt sendur út á degi rímnalagsins. Við hugum líka sterkustu stelpu í heimi. Trausti Ólafsson fjallar um Línu langsokkur var frumsýnd um helgina í Þjóðleikhúsinu.

Frumflutt

15. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,