Víðsjá

Kristján H Magnússon málari, hljóðgervillinn Katla og Eirrek

Við lítum inn á yfirlitssýningu huldumálarans Kristjáns H Magnússonar, sem stendur yfir í Listasafni Íslands. Ferill Kristjáns var um margt óvenjulegur, en hann lærði málarlist í Bandaríkjunum í upphafi 20. aldar og var fyrstur Íslendinga til halda markvisst sýningar á verkum sínum í erlendum stórborgum. Samhliða sýningum í Listasafni Íslands og Safnasafninu kemur út yfirgrips­mikil bók um ævi Kristjáns og verk í rit­stjórn Einars Fals Ingólfssonar, og við fáum hann til segja okkur nánari deili af Kristjáni. Fyrirtækið Genki Instruments fagnar 10 ára afmæli, og setti nýverið á markað hljóðgervilinn Kötlu, einn allra fyrsta hljóðgervil sem þróaður hefur verið á Íslandi. Ólafur Bjarki Bogason, einn af stofnendum fyrirtækisins heimsækir hljóðstofu og segir okkur frá Genki og gervlinum. Við heyrum líka af nýútgefinu lagi eftir Eirík Stephensen, lagið nefnist Eirrek og er titillag væntanlegrar plötu.

Frumflutt

23. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,