Víðsjá

Legsteinn Muggs, Þú sem ert á jörðu, arkitektúr og fiskur

Í dag er dagur íslenskrar náttúru, og við hefjum þáttinn á því ræða við líffræðinginn og rithöfundinn Nínu Ólafsdóttur, um fyrstu skáldsögu hennar, Þú sem ert á jörðu, sem kom út hjá Forlaginu í liðinni viku. Óskar Arnórsson fjallar í pistli vikunnar um arkitektúr og fisk og við lítum við í Hólavallakirkjugarði, sem er ekki bara meðal fegurstu garða landsins, heldur einnig stærsta og elsta minjasafn Reykjavíkur, eins og listfræðingurinn Björn Th Björnson kallaði hann í bókinni Minningamörk í Hólavallagarði. Þar er til mynda finna mósaíkverk hins danska Elof Risebye, á legsteini Guðmundar Thorsteinssonar, eða Muggs, sem nýverið var gert upp af ítölskum forverði. Við hittum Heimir Janusarson, forstöðumann Hólavallakirkjugarðs við leiði Muggs í þætti dagsins.

Frumflutt

16. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,