Víðsjá

Aldrei las ég Laxness / Salka Valka

Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Salka Valka sem kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932, og segir verkið sögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, en hún elst upp á Óseyri við Axlarfjörð, á miklum umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar.

Samlesari Sölku Völku og sérstakur gestur þáttar er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari.

Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður smáskáldsagan Úngfrúin góða og húsið; dagsetning verður nánar auglýst síðar.

Birt

13. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,