Víðsjá

Gallery Port / Svipmynd

Þeir Árni Már Þórdísar Viðarsson og Skarphéðinn Bergþóruson stofnuðu Gallery Port í litlu bakhúsi í dimmu porti við Laugaveginn árið 2016. Galleríið hefur fest sig rækilega í sessi á undanförnum árum sem eitt framsæknasta rými borgarinnar, en þar er hlúð grasrótinni og einblínt á unga og upprennandi listamenn, þó eldri og reyndari listamenn sýni þar líka í bland. Eftir fjögur ár í dimmu skúmaskoti færðu þeir sig í bjartara rými við Laugaveg og í fyrra fluttu þeir svo úr miðbænum og inn í splunkunýtt húsnæði í Laugarneshverfinu. Við ræðum breytingar á húsnæði og breytingar á borginni, málverkið og myndlistarmarkaði, vaxtahækkanir og vináttu og margt fleira við þá félaga í Víðsjá dagsins.

Frumflutt

29. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,