Víðsjá

Tinna Gunnlaugsdóttir, Eiríksþing, Davíð Þór í Heimsljósi og Gao Xingjian

Leikkona, fyrrum þjóðleikhússstjóri og doktor í þýingafræðum eru þrír titlar sem allir eiga við um Tinnu Gunnlaugsdóttur. Doktorsnafnbótin er nýjasta rósin í hnappagatið en hún varði nýverið doktorsverkefni sitt sem bar titilinn Lifandi texti - áhrif þýðinga á sögu leiklistariðkunar á Íslandi. Við ræðum við Tunni í þættinum.

Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir, segir frá nýútkominni þýðingu Gyrðis Elíassonar á bókinni Veiðistöng handa afa mínum, eftir kínversk nóbelskáldið Gao Xingjian.

Davíð Þór Jónsson, tónlistarmaður, rekur hlutverk sitt sem Ólafur Kárason Ljósvíkingur í listaverki Ragnars Kjartanssonar, listamanns, World Light sem hann vann upp úr Heimsljósi Halldórs Laxness.

Og af tilefni Eiríksþings rifjum við upp einn af pistlum Eiríks Guðmundssonar heitins um opnun H&M á Íslandi, frá árinu 2017.

Birt

3. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,