Víðsjá

Sending frá Svalbarðseyri - Safnasafnið

Við leggjum land undir fót í þætti dagsins og rifjum upp heimsókn á Safnasafnið á Svalbarðseyri. Þetta stórmerkilega safn fagnar í ár 30 ára afmæli og af því tilefni hefur verið efnt til sýningar úr safnkosti þess í Reykjavík. Sýningin, Sending frá Svalbarðseyri, opnaði í Nýlistasafninu þann 7. júní og stendur fram yfir verslunarmannahelgi, en þar sjá verk vel á þriðja tugs listamanna sem Safnasafnið hefur hlúð síðustu áratugi. Safnasafnið á Svalbarðseyri er höfuðsafn myndlistar sjálflærðra listamanna, myndlistar sem oft er kölluð alþýðulist eða utangarðslist. Það var stofnað árið 1995, af hjónunum Níelsi Hafstein, myndlistarmanni og Magnhildi Sigurðardóttur, geðhjúkrunarfræðingi, sem unnið hafa ótrúlegt starf við byggja safnið upp og varðveita um leið menningararf sem hefði annars glatast. Halla Harðardóttir brunaði norður í lok síðasta sumars og ræddi við þau Níels og Magnhildi um allt milli himins og jarðar, þar á meðal upphaf safnsins, söfnunaráráttu, skilgreiningar á hugtökum, tengsl alþýðulistar og nútímalistar, blóm og dúkkur og margt, margt fleira.

Frumflutt

18. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,