Víðsjá

Steinunn Þórarinsdóttir / svipmynd

Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari er gestur í Svipmynd Víðsjár í dag.

Eftir menntaskóla flutti Steinunn til Englands þar sem hún nam myndlist og kynntist leirnum, sem leiddi hana yfir í þrívíddina. Frá Englandi hélt hún til Ítalíu þar sem hún sökkti sér í klassíkina auk þess læra elda hið fullkomna spagettí Bolognese.

Steinunn hélt sína fyrstu einkasýningu hér á landi 1976, þar sem óræðar verur, sviðsetning og þungir málmar settu tóninn fyrir það sem koma skyldi. Síðan þá hafa mannverur hennar tekið á sig sjálfstætt form og ferðast í ólíkum efnum um gallerí, söfn og almenningsrými. Á löngum ferli hefur Steinunn gefið sig alla listinni og sýnt víða. Hún vinnur með galleríum í London, Kaupmannahöfn, Toronto og Kaliforníu en opnaði sína fyrstu sýningu hér á landi í tíu ár um liðna helgi í Gallerí Þulu og samhliða gefur Kind út bók um ferilinn.

Frumflutt

1. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,