• 00:03:33Skjaldborg
  • 00:16:53Leiksýningin Skot - rýni Trausta Ólafssonar
  • 00:28:20Steinunn Sigurðardóttir

Víðsjá

Skjaldborg, leiksýningin Skot og Skálds saga

Þáttur dagsins er mestu tileinkaður tveimur nýafstöðnum hátíðum sem marka upphaf sumars; Reykjavík Fringe Festival og Skjaldborgarhátíðinni. Svo mætir í hljóðstofu eitt höfuðskáld bókmenntasenunnar, Steinunn Sigurðardóttir, og rifjar upp tilurð Skálds sögu, í tilefni af viðburði Forlagsins á Fiskislóð á fimmtudag. Leiksýningin Skot, eftir Júlíu Gunnarsdóttur var sýnd í tvígang á Reykjavík Fringe Festival. Trausti Ólafsson, leikhúsrýnir, fór á sýninguna og segir okkur af sinni upplifun. Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda var haldin í átjánda sinn um helgina. Dómnefndarverðlaun Skjaldborgar hlaut myndin Paradís amatörsins eftir Janus Braga Jakobsson og við rifjum upp viðtal við Janus í upphafi þáttar.

Frumflutt

10. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,