Víðsjá

Búðarkirkja vinsæll áfangastaður og Revolta í Eldborg

Af einhverjum ástæðum hefur Búðakirkja orðið gríðarvinsæll áfangastaður erlendra ferðamanna undanfarin ár. Kirkjan er ein af mest mynduðu kirkjum á Íslandi og ferðast fólk oft langar leiðir til þess gefa sig saman í henni. Við kynnum okkur málið nánar í þætti dagsins og skoðum sömuleiðis sögu kirkjunnar en í henni kemur fyrir sterk kvenpersóna, Steinunn Sveinsdóttir, sem fer sínar eigin leiðir og sendir kirkjuyfirvöldum 19. aldar fingurinn með einum mjög svo táknrænum dyrahring.

Sinfónía og hip hop dans mætast í fyrsta sinn á Íslandi í Eldborgarsal Hörpu þann 14. júní þegar hljómsveitin Geneva Camerata og krömpdansarar sameinast í einu meistaraverki tónlistarsögunnar, fimmtu sinfóníu Dmitris Shostakovítsj. Brynja Pétursdóttir danshöfundur og Þorbjörg Daphne Hall lektor litu við í hljóðstofu og segja okkur betur frá þessum merkilega viðburði.

Viðmælendur: Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir, kirkjuvörður Búðakirkju, Brynja Pétursdóttir, danshöfundur, Þorbjörg Daphne Hall, lektor.

Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir

Frumflutt

5. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,