Víðsjá

Harmur kynslóðanna

Í dag er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí og þáttastjórnendur Víðsjár eru með hugann við stóru málin; harm kynslóðanna, stríð í heiminum, hlutverk listarinnar gagnvart því öllu, auða blaðið og ógnina. Við skoðum brot úr þætti frá 1988 þar sem ungt fólk og samfélagsrýnarnir Svava Jakobsdóttir, rithöfundur, og Gunnar Kristjánsson, prófastur emeritus, tjá sig um heimsmál, tíðaranda, stríð og frið. Á þeim tíma var stutt í endalok kalda stríðsins en í ljósi frétta samtímans fáum við Gunnar til hlusta aftur á hinn tæplega 40 ára þátt, líta til baka og skoða upp á nýtt enda er aftur talað um kjarnorkuvopn, stríð geisa og uggur er í fólki víðs vegar um heim.

Bakgrunnur myndlistarkonunnar Larissu Sansour er í heimildamyndagerð og fyrstu myndir hennar voru tilraunir til draga fram það sem raunverulega var gerast í Palestínu. En þegar hún upplifði sífellt meira ósamræmi milli þess sem birtist henni í fréttum og þess sem hún heyrði frá fjölskyldu sinni færðust verk hennar yfir í vísindaskáldskap, þar sem hún fann skjól frá ríkjandi orðræðuhefðum. Í kjölfarið fylgdu vangaveltur um mörk raunveruleika og skáldskapar, fortíðar og framtíðar. Við heimsækjum Listasafn Reykjanesbæjar þar sem einkasýning þessarar alþjóðlegu stórstjörnu í myndlistarheiminum stendur yfir.

Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

26. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,