Víðsjá

Kolkrabbinn, dægurlög, Albertine æfingarnar, skrúfur og tappar

Kolkrabbinn er viðburðaröð Ensemble Adapter í samvinnu við Tjarnarbíó. Á Kolkrabbanum sjá verk sem dansa á mörkum tónlistar, gjörningalistar, dans og leikhúss, einhverskonar tilrauna-tón-leikhús sem er samt ekki ópera. Kolkrabbinn er með alla anga úti og allt í öllu og annað kvöld verður hann í fyrsta sinn á sviði Tjarnarbíós með verk sem heitir Everything Everywhere. Hörpuleikarinn Gunnhildur Einarsdóttir og slagverksleikarinn Matthias Engler eru forsprakkar Kolkrabbans og þau segja okkur nánar af uppátækjum hans í þætti dagsins.

Gauti Kristmannsson fjallar um nýútkomna bók í glænýrri ritröð Tunglsins, Svartholi, er þýðing Ragnars Helga Ólafssonar á verki Anne Carson og heitir Albertine æfingarnar.

Við hugum líka sígildri nútímatónlist og veltum fyrir okkur hvaða dægurlög lifi af umrót tímans og einnig skoðum við tappa og skrúfur í vegg.

Frumflutt

26. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,