Víðsjá

Þórunn Elísabet Sveinsdóttir / Svipmynd

„Ég lærði dáldið mikið seint, ef maður er hræddur við eitthvað, þá á maður gera það. En ég var hrædd lengi,“ segir Þórunn Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, myndlistarkona og margverðlaunaður búninga- og sviðsmyndahönnuður. Þórunn Elísabet er fædd árið 1952 á Siglufirði. Hún stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og árið 1982 hélt hún sína fyrstu einkasýningu í Nýlistasafninu í Reykjavík. Allar götur síðan hefur hún unnið myndlist meðfram því hanna búninga og sviðsmyndir fyrir leikhús og kvikmyndir. Þórunn hefur haldið einkasýningar og tekið þátt fjölda samsýninga en um þessar mundir sýnir hún á Listasafninu á Akureyri, verk þar sem 100 slæður blökta og gefa frá sér ólíka ilmi. Í verkum sínum vinnur Þórunn Elísabet með efniskennd hlutanna, söguna, endurvinnslu, handverkið, dagdrauma og ekki síst alltumlykjandi kvennaarfinn. Heimili Þórunnar Elísabetar er eins og eitt stórt listaverk og þar tekur hún á móti Víðsjá í Svipmynd vikunnar.

Frumflutt

26. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,