• 00:02:02Vincente Lucitano
  • 00:16:31Tugthúsið: Rýni
  • 00:27:23Rauður þráður: Sigrún Hrólfsdóttir um Hildi H.

Víðsjá

Rauður þráður Hildar Hákonardóttur, Vincente Lusitano, Tugthúsið

Næstkomandi laugardag, 14 janúar, opnar á Kjarvalstöðum yfirlitssýning á verkum myndlistarkonunnar Hildar Hákonardóttur. Hildur hefur á löngum ferli fjallað um málefni samtíma síns, kynjapólitík, stéttapólitík, og utanríkispólitík en auk þess um náttúruna og gildi hennar fyrir manneskjuna. Hildur hefur lifað og fjallað um umbreytingartíma, samfélagslega og hugmyndafræðilega en einnig umbreytingartíma í myndlistinni og kennsluaðferðum hennar. Til sköpunar hefur Hildur nýtt sér ýmsa miðla en hennar helsti miðill hefur alltaf verið vefnaðurinn. Sýningin á Kjarvalsstöðum, sem kallast Rauður þráður, veitir innsýn í feril Hildar og starfsaðferðir hennar í gegnum tíðina, en hún er afrakstur rannsóknar sýningarstjórans, Sigrúnar Hrólfsdóttur. Við lítum inn á Kjarvalsstaði og ræðum við Sigrúnu Hrólfsdóttur í þætti dagsins.

Og við hugum manni sem hét Vincente Lusitano og fæddist fyrir fimmhundruð árum suður í Portúgal í litlum bæ, ekki svo langt frá Atlantshafinu. Hann varð tónskáld og hann var það sem kallað var pardo.

Og Gauti Kristmannsson fjallar um Tugthúsið, skáldsögu Hauks Más Helgasonar sem kom út fyrir jólin. Þar varpar höfundur ljósi á lífið í Reykjavík á seinni hlusta átjándu aldar og þar er Tukthúsið, Stjórnarráðshús dagsins í dag, í miðpunkti.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson

Frumflutt

12. jan. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,