Víðsjá

Kvöldstund með smávinum, gjörningur í Hvammsvík, tónlistarrýni og ljóðarýni

Við kynnum okkur einn af fjölmörgum viðburðum Sequences hátíðarinnar í þætti dagsins, þátttökugjörninginn Ég er hjarta sem slær í heiminum, sem fer fram í náttúrulaugunum í Hvammsvík á laugardagskvöld. Gjörningurinn sameinar, sögn aðstandenda, tónleika, dans, flot og snertingu þar sem áhorfendur eru virkir þátttakendur. Tumi Árnason verður einnig með okkur í dag, og segir frá sinni upplifun af State of the Art tónlistarhátíðinni, sem fór fram dagana 7-11 október, og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í nýútkomna ljóðabók Sunnu Dísar Másdóttur, Postulín. En við hefjum þáttinn á kynna okkur viðburð sem hverfist um stutta bókmenntatexta, hvort sem það eru örsögur, smáprósar, prósaljóð eða hvað annað. Viðburðurinn kallast Kvöldstund með smávinum og er haldinn á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og STUTT, rannsóknastofu í smásögum og styttri textum. Kristín Guðrún Jónsdóttir, prófessor í spænsku er önnur þeirra sem heldur utan um verkefnið, og hún heimsækir okkur í hljóðstofu í upphafi þáttar.

Frumflutt

16. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,