Víðsjá

Gyrðir í Glerhúsinu, Hanna Dís í Hakk og Þegar ég sé þig/rýni

Það kom ýmsum á óvart þegar Gyrðir Elíasson tók sig til og opnaði myndlistarsýningu í Garði á Reykjanesi fyrir tæpum tveimur árum og sýndi þar hvorki meira minna en 1200 myndverk. Gyrðir segir Reykjanesið hafa kynnt undir myndlistarmanninum í sér, þótt hann hafi raunar lengi í sér blundað. Nýverið opnaði hann aðra einkasýningu sína, sem hann nefnir Í morgunbirtu, í Glerhúsinu við Vesturgötu og þangað höldum við í þætti dagsins.

Trausti Ólafsson leikhúsrýnir verður einnig með okkur í dag, þessu sinni rýnir hann í leikverkið Þegar ég þig, ég mig, nýtt íslenskt samsköpunarverk sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi. En við hefjum þáttinn á því lita inn í Gallerý Hakk við Óðinsgötu 1 þar sem hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead opnaði nýja sýningu í síðustu viku. Þar sýnir Hanna Dís ólíka muni sem dansa á mörkum hönnunar og myndlistar en sem eiga það sameiginlegt nýta strá sem efnivið.

Frumflutt

3. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,