Víðsjá

Tónlist og sjálfstæðisbarátta Grænlands, Þetta er Laddi/rýni

Fyrir ofan Nuuk stendur stytta af trúboðanum Hanse Egede, en koma hans til Vestur-Grænlands árið 1721 markar upphaf nýlendutímans í sögu landsins. Styttan hefur margsinnis verið skemmd, hausinn jafnvel fengið fjúka og á hana krotað; DECOLONIZE. Við skoðum samvirkni grænlensku sjálfstæðisbaráttunnar og tónlistarsögu landsins í þætti dagsins.

Nína Hjálmarsdóttir rýnir líka í leiksýninguna Þetta er Laddi, sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu um liðna helgi, og Halla leitar meðmælum fyrir menningarefni hjá starfsfólki verslana í Kringlunni.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

13. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,