Víðsjá

Nýir félagsbústaðir, Allt sem við hefðum getað orðið og arkitektúr og heilsa

Á dögunum kom út skáldsagan Allt sem við hefðum getað orðið, eftir rithöfundinn og blaðakonuna Sif Sigmarsdóttur. Aðalpersónur sögunnar eru þrjár konur af ólíkri kynslóð sem hver um sig horfist í augu við eigið val og drauma í lífinu. Sagan er nokkru byggð á ævi Annie Leifs, fyrstu eiginkonu Jóns Leifs, en Sif kemur í hljóðstofu og segir okkur nánar af bókinni. Þess utan verðum við með hugann við arkitektúr í þætti dagsins. Við heimsækjum nýja félagsbústaði við Háteigsveg og ræðum þar við Arnhildi Pálmadóttur, arkitekt, en húsið er tilnefnt til hönnunarverðlauna Íslands sem verða afhent á fimmtudag. Óskar Arnórsson flytur auk þess sinn ellefta pistil um arkitektúr og fjallar þessu sinni um arkitektúr og heilsu.

Frumflutt

3. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,