Víðsjá

Hraunmyndanir - framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr

Árið er 2150. Við erum stödd í framtíðarsamfélagi þar sem okkur hefur tekist beisla hraunrennsli, eins og okkur tókst með gufuaflið á 20. öld. Með framsæknum lausnum nýtum við hraun sem byggingarefni og umbreytum staðbundinni ógn í auðlind.

Þetta er í stuttu máli grunnhugmyndin Hraunmyndunum, framlagi Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr, sem opnar um helgina. Arkitektastofan s.ap arkitektar, þverfagleg rannsóknarstofa með áherslu á tilgátuverkefni framtíðarinnar, eru höfundar Hraunmyndanna. Listrænn stjórnandi verkefnisins er arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir en auk hennar skipa teymið þau Arnar Skarphéðinsson, Björg Skarphéðinsdóttir, Sukanya Mukherjee, Jack Armitage og Andri Snær Magnason.

Hópurinn er í óða önn við klára uppsetningu verksins, en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr. Við tileinkum svipmynd dagsins þessu stórmerkilega verkefni, Hraunmyndunum, og tökum púlsinn á teyminu á lokaprettinum fyrir foropnun íslenska skálans í Feneyjum.

Frumflutt

7. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,