Víðsjá

Þetta er gjöf, Voces8, Ragna Sigurðar pistill

Annað kvöld verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu nýtt leikverk eftir ungan íslenskan höfund, Þetta er gjöf eftir Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur. Kolbrún er margverðlaunað leikskáld og leikstjóri sem hefur síðastliðinn áratug starfað mestu á Bretlandseyjum.Verkið er tilbrigði við goðsöguna af Mídasi, sem hlaut þann eiginleika allt sem hann snerti breyttist í gull, en það er Katla Þórudóttir Njálsdóttir sem leikur. Við fáum leikhöfundinn og leikstjórann Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur í þátt dagsins.

Ragna Sigurðardóttir verður einnig með okkur í dag en þessu sinni fjallar hún um þrjár nýjar sýningar, sem allar fjalla á einhvern hátt um líkamsmynd kvenna og mannslíkamann.

Og við ræðum við Margréti Bóasdóttur, formann Landssambands blandaðra kóra um komu breska kórsins Voces8 til landsins og tónleikana sem hann heldur í samstarfi við fjóra íslenska kóra.

Frumflutt

25. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,