Víðsjá

Kristín Ómarsdóttir/Móðurást:Draumþing, Óperudagar/Örlagasögur kvenna, Við erum hér/rýni

Við lítum við í bláu húsi í gamla vesturbænum og ræðum við Kristínu Ómarsdóttur um nýútkomna bók, Móðurást: Draumþing. Þar segir hún skáldaða sögu langömmu sinnar á ofanverðri nítjándu öld í Biskupstungum, en sögn Kristínar er bókin líka óður til vatnsins. Draumþing er annar hluti frásagnarinnar sem hófst með Móðurást: Oddnýju fyrir ári síðan, en fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin.

Trausti Ólafsson verður einnig með okkur í dag, og þessu sinni rýnir hann í glymskrattasöngleikinn Við erum hér, sem leikhópurinn Viðlag sýnir um þessar mundir í Tjarnarbíói.

En við hefjum þáttinn á því taka á móti Margréti Hrafnsdóttur söngkonu. Margrét tekur þátt í óperudögum með viðburði sem kallast Örlagasögur kvenna, ásamt rússneska píanóleikaranum Polinu Fradkina. Báðar hafa þær brennandi áhuga á því segja sögur, og þá sérstaklega sögur af örlögum kvenna.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

29. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,