Víðsjá

Ný skáldsaga Soffíu Bjarnadóttur og tónleikar með Heather Ragnars

Soffía Bjarnadóttir, rithöfundur, ljóð- og leikskáld, heimsækir okkur í dag og segir frá nýútgefnu skáldverki sínu sem nefnist Áður en ég brjálast. Um er ræða feminískt skáldverk um ástir, ólík breytingarferli og lífsreynslu róttækrar móður sem leitar heim í skáldskapinn þar sem goðsagnaverur vappa um. Við hugum einnig tónlist því listahátíðin Reykjavík Fringe hóf göngu sína í gær og stendur út vikuna. Tónlistarkonan Heather Ragnars verður með tvenna tónleika á hátíðinni og leit við hjá okkur í hljóðstofu. Við rifjum einnig upp lestur Bríetar Héðinsdóttur úr rúmlega þúsund ára gamalli dagbók Sei Shónagon.

Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Anna María Björnsdóttir.

Frumflutt

2. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,