Víðsjá

Nýfundin tilbrigði Leifs Þórarinssonar og Mansöngvar Jóns Halls

Fyrr í sumar uppgötvaðist á bókasafni Columbia háskóla í New York áður óþekkt píanóverk eftir eitt af höfuðtónskáldum Íslendinga, Leif Þórarinsson. Um er ræða tilbrigði við þjóðlegt en frumsamið stef, sem taka um 4 mín í flutningi. Á hljóðrituninni fannst líka viðtal við Leif sem er um margt forvitnilegt. Tónlistarfræðingurinn Árni Heimir Ingólfsson segir frá þessum merkisfundi í fyrstu Víðsjá vetrarins.

Jón Hallur Stefánsson gaf nýverið út Mansöngva, tvöfalda hljómplötu þar sem hann leikur

á píanó og syngur sína eigin texta, sem fjalla um ástina í öllu sínu veldi. Jón Hallur hefur verið ötull þýðandi undanfarin ár, auk þess skrifa glæpasögur og ljóð. Hann lýsir sköpunarferli lagasmíðanna við það vera í hálfgerðu vímuástandi, þar sem textarnir flæða inn í ómótaða melódíuna.

Frumflutt

18. ágúst 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,