Víðsjá

Svipmynd - Barbara Hannigan - ensk útgáfa

Barbara Hannigan er margverðlaunuð sópransöngkona og hljómsveitarstjóri, tónlistarkona í framlínu þess áhugaverðasta og vandaðasta sem gerist í klassíska tónlistarheiminum í dag. Hún er þekkt fyrir hugrekki og frumlegheit í efnisvali og sérlega vandaðar tónleikaefnisskrár, þar sem hún blandar saman gömlu og nýju á músíkalskan og áhrifaríkan hátt. Hannigan er án efa meðal hæfileikaríkustu og eftirsóttustu tónlistarmanna í heiminum og það því sannarlega stórfrétt þegar tilkynnt var Hannigan myndi taka við stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá haustinu 2026. styttist í Barbara Hannigan stígi á Eldborgarsviðið næst, því hún mun stýra og syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands á lokatónleikum tónleikaársins, þann 5. júní næstkomandi.

Svipmynd dagsins er tileinkuð Barböru Hannigan.

Í útsendingu ljáði Gígja Hólmgeirsdóttir Barböru rödd sína, en í þessari vefútgáfu Víðsjár heyra svör Hannigan sjálfrar á ensku.

Frumflutt

21. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,