Víðsjá

Víkingur fær Grammy, Hliðarspor, Strá fyrir straumi / rýni, Árið án sumars / rýni

Við hefjum þáttinn á því hringja í nýbakaðan Grammy-verðlaunahafa, Víking Heiðar Ólafsson.

Þær Kristín Sveinsdóttir söngkona og Þórunn Guðmundsdóttir verða einnig gestir okkar í dag. Kristín syngur í Hliðarspori, nýrri óperu Þórunnar sem fruflutt verður á fimmtudag, og í Brúðkaupi Fígarós, sem Kammeróperan sýnir í Borgarleikhúsinu. Báðar óperurnar, og reyndar Rakarinn í Sevilla sem Óður sýnir í Sjálfstæðishúsinu, eru byggðar á leikritum sama leikskálds og fjalla miklu leyti um sömu persónurnar, en þó á ólíkum tímum. Við ræðum þessa óperuveislu í þætti dagsins.

Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Strá fyrir straumi, bók Erlu Huldar Halldórsdóttur um ævi Sigríðar Pálsdóttur.

Trausti Ólafsson rýnir í Árið án sumars, sem Marmarabörnin frumsýndu í Borgarleikhúsinu um helgina.

Frumflutt

3. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,