Víðsjá

Stefán Ragnar Höskuldsson, grænlenska rokksveitin Sumé og Örvæntingarpistill Birnis Jóns#2

,,Ég vissi ég vildi verða flautuleikari um leið og ég prófaði fyrst spila á flautu 8 ára gamall. Frá þeim tíma varð flautan það eina sem komst í mínu lífi," segir flautuleikarinn Stefán Ragnar Höskuldsson. Hann hreppti fyrir helgi stöðu 1. flautuleikara við Berlínarfílharmóníuna, sem margra mati er fremsta sinfóníuhljómsveit heims. Við hringjum til Chicago í upphafi þáttar og heyrum hljóðið í Stefáni Ragnari.

Sviðshöfundurinn Birnir Jón Sigurðsson flytur okkur í dag annan pistil sinn í Örvæntingarpistlaröðinni Hvað varð um gæskuna? og við rifjum líka upp stórmerkilega heimildamynd um goðsagnakenndu grænlensku hljómsveit Sumé.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

10. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,