Víðsjá

Tolstoj og Þorvarður Árnason

Við hugum rússneska rithöfundinum Leo Tolstoj en bók hans Anna Karenína kom út árið 1878 og hefur svo segja verið í deiglunni allar götur síðan. Þessi heimsbókmennt verður til umræðu hjá okkur í sjomlahorni dagsins. Rebekka Þráinsdóttir kemur við í hljóðstofu og greinir frá verkinu.

Þorvarður Árnason heimsækir þáttinn einnig. Hann er líffræðingur, ljósmyndari, kvikmyndagerðarmaður og umhverfishugvísindamaður sem hefur undanfarna áratugi kannað samband manns og náttúru frá ýmsum sjónarhornum. Hann er meðal listamanna á samsýningunni Jöklablámi, sem opnaði í Verksmiðjunni á Hjalteyri nýverið og í vor kom út eftir hann bókin Víðerni, þar sem hann veltir fyrir sér hinu villta í náttúru Íslands og gerir íslenskum víðernum skil á þverfaglegan hátt.

Frumflutt

27. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,