Víðsjá

Ósmann, arkitektúr og geðheilbrigði #3 og Kosmískt skítamix/rýni

Við Vesturós Héraðsvatna um aldamótin 1900 bjó heljarmennið Jón Magnússon sér byrgi, og þar starfaði hann í 40 ár við ferja menn og skepnur yfir stórfljótið. Ósmann var einstakur karakter, mannvinur, veiðimaður og skáld, og saga hans vakti áhuga rithöfundarins Joachim Schmidt, sem búsettur hefur verið á Íslandi síðustu 20 ár. Joachim segir okkur af skáldsögunni Ósmann í síðari hluta þáttar. Hildigunnur Sverrisdóttir verður einnig með okkur í dag og flytur sinn þriðja pistil af fjórum um samhengi geðheilbrigðis og arkitektúrs, en við hefjum þáttinn á leikhúsinu: Katla Ársælsdóttir fór sjá Kosmískt skítamix í Tjarnarbíói.

Frumflutt

9. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,