Víðsjá

Ásta málari, Vala Gestsdóttir á Erkitíð, Tímaflakk Steinu Vasulku /rýni

Við lítum inn á sýningu í Duus safnahúsunum í Reykjanesbæ sem tileinkuð er lífi og störfum Ástu Árnadóttur, eða Ástu málara. Ásta vildi ekki verða vinnukona heldur vera sjálfstæð og atvinnu sem væri arðbær til jafns við það sem þekktist hjá körlum. Hún lauk prófi í málaraiðn árið 1907 og var þar með fyrsta íslenska konan til taka próf í iðngrein. Þremur árum síðar hlaut hún meistarabréf í iðninni, fyrst kvenna og fyrst Íslendinga. Við hittum líka Völu Gestsdóttur, sem á opnunarverk raftónlistarhátíðarinnar Erkitíðar. Vala er í grunninn víóluleikari en hefur í seinni tíð snúið sér tónheilun og sköpun tónlistar með hljóðfærum hugleiðslutónlistarinnar. Um miðbik þáttar fjallar Ragna Sigurðdardóttir um yfirstandandi yfirlitssýningu á verkum Steinu Vasulka, Tímaflakk.

Frumflutt

23. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,