Víðsjá

Heima Judith Hermann, RDF rýni, myndlistarpistill Rögnu og hafnar.space

Minna fer fyrir þýddum bókum en íslenskum í jólabókaflóðinu, en við ætlum bæta úr því í þætti dagsins og til okkar einn af okkar færustu þýðendum í hljóðstofu, Elísu Björgu Þorsteinsdóttur. Hún þýddi nýlega skáldsögu Judith Hermann, Heima, en Hermann er einn fremsti höfundur hins þýska bókmenntaheims og mörgum íslenskum lesendum vel kunn.

Katla Ársælsdóttir fór nýverið á Reykjavík Dance Festival og segir okkur af því í þætti dagsins og Ragna Sigurðardóttir, myndlistarrýnir, fjallar um tvær samsýningar: Skúlptúr skúlptúr performans í Gerðarsafni og sýninguna Safakúr í SIND Gallery. En við hefjum þáttinn á því hringja í nýtt sýningarrými, listamannareknarýmið hafnar.space, sem staðsett er í hafnarhaus við Tryggvagötu.

Frumflutt

20. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,