Víðsjá

Barrokkbandið Brák, dróttkvæði og Spaðar

Reykjavík Early Music Festival er alþjóðleg barokkhátíð sem haldin er hér í Reykjavík, í þriðja sinn í ár, en þar leika íslenskir og erlendir hópar, sem sérhæfa sig í upprunaflutningi, tónlist frá miðöldum, endurreisnartímanum, barokktímabilinu og rómantíska tímanum. Opnunartónleikarnir fara fram annað kvöld í Hörpu og eru í höndum Barrokkbandsins Brákar og í þættinum lítum við inn á æfingu hjá bandinu.

Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, flytur í dag erindi um kvæðið Velleklu og hugarheim hirðskáldanna, og bendir á dróttkvæði mætti líka kalla: óskiljanlega orðræðu í bergmálshelli hinnar menntuðu elítu.

Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og tónlistarmaður, heimsækir einnig þáttinn og segir frá hljómsveitinni Spöðum sem hafa komið víða við á löngum ferli og munu stíga á stokk í Hilton Nordica í vikunni á Blúshátíð Reykjavíkur.

Birt

30. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,