Víðsjá

Sigurður Ámundason / Svipmynd

„Listamenn eru eins og prestar,” segir Sigurður Ámundason myndlistarmaður, sem fylgir Víðsjá út í Gróttuvita í dag. „Við fjöllum um mannlega breiskleika, samfélagið og tölum um tilfinningar. Munurinn á myndlistarmönnum og prestum er myndlistarmenn predika ekki. Við felum alltaf það sem við erum reyna segja.”

Sigurður sýnir um þessar mundir í vitanum og vitavarðahúsinu. Sýningin sem kallast Úthverfavirki er fimmta í sýningarröð LIstasafns ASÍ þar sem listamaður er valin til sýna á tveimur stöðum á landinu. Við ræðum aðferðir hans í myndlistinni og verkin í Gróttu þar sem klassísk viðfangsefni listasögunnar birtast í samspili manns og náttúru. Sigurður hefur mikinn áhuga á þessu samspili segist stöðugt reyna túlka samtímann í gegnum þetta samspil. Hann vill vera í núinu og forðast nostalgíuþ. Einnig ræðum við samskiptaerfiðleika mannskepnunnar en Sigurður segir mannleg samskipti vera sitt leiðarljós í myndlistinni.

Frumflutt

26. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,