Víðsjá

Kári Egilsson, heimspeki um ljós og skugga og Engel Lund

Þáttur dagsins er flétta heimspekilegra hugmynda, tónlistar og dans. Við heyrum djúphugsaða hugleiðingu úr brunni Freyju Þórsdóttur, sem í dag veltir fyrir sér samspili ljóss og skugga og gildi þess horfast í augu við myrkrið. Í beinu framhaldi heyrum við brot úr viðtali við Pál Skúlason heitinn, þar sem hann veltir fyrir sér hlutverki heimspekingsins í samfélaginu, en nýverið stóð Háskóli íslands málþingi Páli til heiðurs.

Í síðari hluta þáttar lítur tónskáldið og píanóleikarinn Kári Egilsson við í hljóðstofu, en hann hefur vakið mikla athygli síðustu misseri fyrir tónlist sína, bæði á sviði jazz og popptónlistar, og vinnur um þessar mundir sínum fjórðu og fimmtu plötum, aðeins 23 ára gamall. Við hugum líka Grímuverðlaununum, sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gær. Hringir Orfeusar og annað slúður, sýning Ernu Ómarsdóttur og Íslenska dansflokksins, var þar valin sýning ársins. En fyrst gröfum við upp 65 ára hljóðritanir Göggu Lund, og heyrum brot úr þætti Sigrúnar Björnsdóttur, Söngkonan á svarta kjólnum, frá árinu 1997.

Frumflutt

11. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,