Víðsjá

Ásgerðarsafn, ný íslensk stórsveitartónlist og arkitektúrpistill #2

Ásgerður Búadóttir var frumkvöðull í listvefnaði á Íslandi og telst meðal fremstu myndlistarmanna þjóðarinnar. Í síðustu viku opnaði glænýtt safn tileinkað Ásgerði og ævistarfi hennar á veraldarvefnum, á slóðinni asgerdarsafn.is. Umsjónarmaður safnsins og sonur Ásgerðar, Björn Þrándur Björnsson, segir okkur nánar af safninu og vinnunni baki í þætti dagsins. Samúel Jón Samúelsson segir okkur líka frá tónleikum sem Stórsveit Reykjavíkur stendur fyrir í Hörpu á sunnudag undir yfirskriftinni íslensk tónlist, en þar verða flutt glæný tónverk eftir ólíka íslenska höfunda. Og arkitektinn og arkitektúrsagnfræðingurinn Óskar Arnórsson flytur okkur pistil númer tvö í nýrri pistlaröð sem hann kallar Arkitektúr og...

Frumflutt

22. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,