• 00:05:14Bókamarkaðurinn í Holtagörðum
  • 00:19:4860 kílóa þríleikur Hallgríms-Soffía Auður
  • 00:29:09Darraðarljóð Jóns Leifs

Víðsjá

Darraðarljóð á 75 ára afmæli, 60 kílóa þríleikurinn, bókamarkaðurinn

Í kvöld og annað kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 75 ára afmæli sitt með stapp-uppseldum tónleikum í Eldborg, þar sem öllu verður tjaldað til. Meðal verka á efnisskránni er 60 ára gamalt tónverk Jóns Leifs, Darraðarljóð. Verkið er skrifað fyrir nokkuð stóra hljómsveit og kór, er gífurlega krefjandi og hefur aldrei verið flutt áður. Víðsjá leit við á lokaæfingu í Hörpu í morgun og hitti þar framkvæmdastjóra SÍ, okkar góða Guðna Tómasson, Hildi Ploder Vigfúsdóttur, forvörð á Landsbókasafni og Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, til forvitnast um verkið og tilefnið.

Við lítum líka inn á bókamarkaðinn í Holtagörðum og Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um sextíu kílóa þríleik Hallgríms Helgasonar.

En Víðsjá hefst á tilnefningum til Myndlistarverðlaunanna fyrir árið 2024.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

6. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,