Mannlegi þátturinn

Hugleiðingar um vestræna menningu, Landsmót 50+ og Sigurdís á Heilsuvaktinni

Við rákumst á áhugaverða grein sem Miriam Petra Ómarsdóttir Awad skrifaði í Heimildina undir fyrirsögninni Hugleiðingar um vestræna menningu. Þar veltir hún fyrir sér hvernig hugmyndin um „vestræna menningu“ mótar sýn okkar á annað fólk. En föðurfjölskylda hennar er egypsk og hún hefur í gegnum tíðina lent ítrekað í þeirri stöðu finna sig knúna til þess sannfæra viðmælendur sína um þau væru gott fólk og oftar en ekki „þau væru sko mjög vestræn“. Miriam var hjá okkur í þættinum í dag.

Landsmót UMFÍ 50+ fer fram helgina og aðalmótssvæðið er í Hrafnagilshverfi en einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík. Mótið er opið öllum sem verða 50 ára á árinu og eldri. Keppt verður í 18 greinum á mótinu og við slógum á þráðinn norður og töluðum við Ómar Braga Stefánsson landsfulltrúa og framkvæmdastjóra Landsmóta UMFÍ.

Notkun tíðahvarfahormóna hefur aukist talsvert hér á landi síðustu fimm ár. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst það er ekki áhættulaust, eins og margir gætu haldið, heldur er talið þau geti aukið áhættu á brjóstakrabbameini hjá konum ef þau eru notuð of lengi og í of miklu magni. Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir og prófessor í Háskóla Íslands segir tíðahvarfahormón klárlega eiga rétt á sér ef einkenni breytingaskeiðs hjá konum eru mikil og þrálát en þá til eins skamms tíma og hægt er. Helga Arnardóttir ræddi við Sigurdísi í Heilsuvaktinni í dag um þetta og helstu áhættuþætti fyrir krabbameini hjá konum.

Tónlistin í þættinum:

Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir (Matt Poulson, texti Iðunn Steinsdóttir)

Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus, texti Tómas Guðmundsson)

Lets Go Away for a While / Beach Boys (Brian Wilson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

16. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,