Mannlegi þátturinn

Hjóla 3500 km. á 34 dögum, Bústaðabúar og vísindaspjallið

Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson eru á leið í afar krefjandi hjólreiðaferð þar sem þeir munu hjóla um 3.500 km um vesturströnd Bandaríkjanna á 37 dögum. Markmið ferðarinnar er vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og undirstrika mikilvægi líkamlegrar hreyfingar í baráttunni við sjúkdóminn, en Einar er sjálfur með Parkinson. Þeir komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá þessu ferðalagi sem hefst um helgina.

Heiða Björk Sturludóttir er skrifa bók sem heitir Bústaðabúar, bók um fólk sem á sitt aðalheimili í svokölluðum frístundahúsum. Þetta er viðtalsbók til kynna þennan lífsstíl og sýna hversu mikil fjölbreytni er í hópnum. Alls kyns fólk á alls kyns aldri sem fæst við alls kyns. Við ræddum við Heiðu Björk í dag.

Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá nýju lyfi gegn beinþynningu.

Tónlist í þættinum í dag:

Torfi á orfi / Snorri Helgason (Snorri Helgason)

Einbúinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson)

Green Green Grass of Home / Tom Jones (Curly Putman)

Hey Rube / The Rocketeers (S. Johnson & A. Johnson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

8. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,