• 00:06:239 menn lostnir þrumu 1865 - af Þjóðskjalasafni
  • 00:22:07Björk Bjarnadóttir - Rabbarbaraspjall
  • 00:34:17Dóra Lena - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Þrumu lostnir 1865, nýting á rabbarbara og Dóra Lena lesandi vikunnar

Við fórum á Þjóðskjalasafnið og hittum Indriða Svavar Sigurðsson skjalavörð og hann sagði okkur afar merkilega sögu. Hann hafði heyrt langafi hans hafi veirð einn 9 manna sem urðu fyrir eldingu við bæinn Auðnar á Vatnsleysuströnd 16. mars árið 1865. Þessi viðburður hafði vakið mikla athygli á sínum tíma og Indriði, verandi skjalavörður, hóf leita heimildum á safninu. Hann fann nokkrar frumheimildir um þetta undarlega og voðalega slys, þar á meðal skýrslu sem Jón Hjaltalín landlæknir skrifaði og sendi heilbrigðisyfirvöldum í Danmörku. Við heyrðum meira um þessa ótrúlegu sögu í þættinum í dag.

Rabbarbarinn á uppruna sinn í Kína og hefur því ferðast langa leið áður en hann festi rætur í íslenskum görðum sem fjölært nytjagrænmeti. En getum við hugsanlega nýtt þessa áhugaverðu plöntu betur? Við veltum því fyrir okkur í dag með Björk Bjarnadóttur, umhverfis- þjóðfræðingi, en hún heldur einmitt erindi um það í Fróðleikskaffi á Borgarbókasafninu Árbæ í dag.

Lesandi vikunnar var Dóra Lena Christians verslunarstjóri í Bóksölu stúdenta og meistaranámsnemi í almennri bókmenntafræði. Hún er nýkomin aftur til landsins eftir hafa sótt stóru bókamessuna í London. Við fengum hana til segja okkur aðeins frá því en svo auðvitað líka þeim bókum sem hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.

Tónlist í þættinum:

Meiriháttar / Rósa Guðrún Sveinsdóttir (Rósa Guðrún Sveinsdóttir)

Í dansi með þér / Ingibjörg Þorbergs, Marzbræður og Kvartett Jans Morávek (Pablo Beltran Ruiz, texti Þorsteinn Sveinsson)

And I love her / The Beatles (Lennon & McCartney)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

16. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,