Mannlegi þátturinn

Droplaugarstaðir, Hinsegin hátíð fyrir norðan og Hrefna Björg lesandinn

Við kynntum okkur í dag starfsemi Droplaugastaða hjúkrunarheimilis sem fékk alþjóðlega viðurkenningu síðastliðið haust og hvatningarverðlaun Velferðaráðs Reykjavíkurborgar á dögunum. Jórunn Ósk Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða og formaður Öldrunarráðs Íslands kokm í þáttinn og sagði okkur frá starfseminni, hvað Eden heimili felur í sér, verðlaununum og því helsta sem er á döfinni hjá þeim.

Við heyrðum svo í Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur, verkefnastjóra Hinsegin hátíðar á Norðurlandi eystra sem haldin verður 18.-22.júní. Þar verður fjölbreytileikanum fagnað og markmiðið er auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Elísabet Ögn sagði okkur betur frá hátíðinni sem meðal annara öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra standa fyrir.

Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Hrefna Björg Gylfadóttir, stefnustjóri hjá Veitum. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Hrefna sagði okkur frá eftirfarandi bókum og höfundum:

Not the end of the world e. Hanna Ritchie

The Hypocrite e. Jo Hamya

Patriot e. Alexei Navalny

Halldór Laxness og Han Kang

Tónlist í þættinum í dag:

Á skútunni minni / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason)

Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)

Constant Craving / K.D. Lang (Mink og K.D. Lang)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

16. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,